Hitum pönnurnar á meðan síðan þín verður til
Ásgeir Hólm Sævarsson
Sjóðið og flysjið kartöflurnar (best að gera þetta tímanlega). Setjið sykurinn á pönnu og hitið á háum hita. Hristið pönnuna (ekki hræra strax) þar til sykurinn bráðnar og fer að freyða og dökkna. Bætið smjörinu út í, lækkið hitann og hrærið saman þar til sykurinn er alveg uppleystur og karamellan er slétt. Setjið kartöflurnar út í. Veltið þeim varlega upp úr karamellunni (gott að nota sleif) þar til þær eru heitar í gegn og vel húðaðar.
Ef þið viljið "mjúka" karamellu má setja slettu af rjóma út í rétt áður en kartöflurnar fara á pönnuna.
Kláraðu máltíðina.