Warming the pans while your page comes together

Kjúklingaréttur með japönsku ívafi
Ísabella Marín
Forhitaðu ofninn á 175°C. Sprautaðu 23x33 cm. eldfastmót með non-stick spreyi.
Settu saman sojasósu, 1.25 dl af vatni, púðursykri, malaðan engifer og smátt saxaðan hvítlauk í lítinn pott og settu lok á. Sjóðið á meðalháum hita. Fjarlægðu lokið og eldaðu í eina mínútu þegar það sýður.
Á meðan, þeyttu saman maíssterkju og 2 msk af vatni í sérstakri skál þar til það er slétt. Þegar sósan sýður, bættu blöndunni út í pottinn og hrærðu til að blanda saman. Eldaðu þar til sósan fer að þykkna og taktu síðan af hitanum.
Settu kjúklingabringurnar í eldfasta mótið. Hellið 2.5 dl af sósunni yfir kjúklinginn. Setjið kjúklinginn í ofninn og bakið í 35 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Takið úr ofninum og rífið kjúklinginn í mótinu með tveimur gafflum.
Á meðan, gufusoðið eða eldið wok grænmetið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
Bætið við elduðu grænmetinu og brúnu hrísgrjónunum í eldfasta mótið með kjúklingnum. Bætið við mestu af afgangssósunni, geymið smávegis til að dreypa yfir þegar rétturinn er borinn fram. Blandið varlega öllu saman í eldfasta mótinu þar til það er að mestu leyti blandað saman. Setjið aftur í ofninn og eldið í 15 mínútur. Takið úr ofninum og látið standa í 5 mínútur áður en borið fram. Drepíð afgangssósunni yfir hvern skammt. Njótið!
Round out the meal.