Warming the pans while your page comes together
Ásgeir Hólm Sævarsson
Deig
Fylling
Rjómaostakrem
Snúðar
Hitið mjólk í örbylgjuofni eða í potti þangað til hún er volg, bætið þá gerinu saman við og leyfið því að gerjast í 2-3 mín. Setjið þá þurrefnin saman í hrærivélarskál og blandið eggjum og mjólkinni varlega saman við. Hrærið varlega saman, bætið þá smjörinu smátt og smátt saman við. Hrærið vel saman á hægum hraða en gott að leyfa því að hrærast saman í 5-10 mín. Leyfið deiginu að hefa sig í klst. eða þangað að til að það hefur u.þ.b. tvöfaldast í stærð.
Fylling
Setjið allt saman í skál og bræðið örstutt í örbylgjuofni og hrærið vel saman, leyfið að hvíla við stofuhita meðan deigið er að hefast. Stillið ofn á 180°C. Fletjið deigið út u.þ.b. 60x40 cm og dreifið fyllingunni jafn yfir. Rúllið deigið upp og skerið í u.þ.b. 2 cm breiða snúða. Raðið þeim í eldfast mót og leyfið þeim að hefast aftur í 30 mín með viskastykki yfir. Bakið snúðana í 25-30 mín. eða þangað til þeir eru farnir að taka á sig smá lit.
Rjómaostakrem
Blandið öllu saman í hrærivélarskál og þeytið í 3-5 mín. Leyfið snúðunum að kólna lítillega og dreifið síðan kreminu yfir. Snúðarnir eru bestir þegar þeir eru enn volgir en svo sannarlega góðir líka kaldir.
Round out the meal.