Warming the pans while your page comes together
Ásgeir Hólm Sævarsson
Bakið sætar kartöflur með hýði í ofni við 180°C í 1 ½ - 2 klst. Langar og mjóar kartöflur þurfa um 1 ½ klst. en stórar og kringlóttar tæplega 2 klst. Skafið sætar kartöflur innan úr hýðinu og maukið þær í matvinnsluvél eða stappið. Skerið smjör í litla bita og hrærið saman við heita kartöflustöppuna ásamt púðursykri og kanil. Smyrjið sætkartöflustöppunni í eldfast mót og raðið sykurpúðum yfir. Bakið í ofni við 210°C á grillstillingu í 10-15 mínútur eða þar til sykurpúðarnir bólgna út og verða fallega ljósbrúnir.
Round out the meal.